| 
        
            
               MyndirMyndir - gamalt
 
Blogg rúnturinnAuður sys
 Vigdís Eva
 Gummi Palli
 María
 Lára Kristín
 Lára danska
 Sigga Víðis
 Vala
 Harpa Hrönn
 Francis
 Anna
 MySpace
 Ingvi Stress
 
 
Litla fólkiðEmma Ýrr
 Iðunn Ragnarsdóttir
 Iðunn Ingólfsdóttir
 Kári
 Áslaug Lilja
 Benjamín Árni
 Frosti og Fanney
 Tómas Ari Ingvason
 
 
More PeoplesLaugabeib
 Palli
 sArA tAlar
 
 
Choir PeoplesEldri færslurGleðikórinn
 Erna María
 Harpa Hrund
 Kynbomban Ásdís
 Anna Ósk chick
 Hillside
 Tell me
 Holy Helgi
 Göj göj
 Hafdís
 Hlín
 Linda Lóla pönk
 Karen
 Birna
 fleiri kórblogg
 
 
 apríl 14, 2002
 apríl 21, 2002
 apríl 28, 2002
 maí 05, 2002
 maí 12, 2002
 maí 19, 2002
 júní 02, 2002
 júní 09, 2002
 júní 16, 2002
 júní 23, 2002
 júní 30, 2002
 júlí 07, 2002
 júlí 14, 2002
 júlí 21, 2002
 júlí 28, 2002
 ágúst 04, 2002
 ágúst 11, 2002
 ágúst 18, 2002
 ágúst 25, 2002
 september 01, 2002
 september 08, 2002
 september 15, 2002
 september 22, 2002
 september 29, 2002
 október 06, 2002
 október 13, 2002
 október 20, 2002
 október 27, 2002
 nóvember 03, 2002
 nóvember 10, 2002
 nóvember 17, 2002
 nóvember 24, 2002
 desember 01, 2002
 desember 08, 2002
 desember 15, 2002
 desember 22, 2002
 desember 29, 2002
 janúar 05, 2003
 janúar 12, 2003
 janúar 19, 2003
 janúar 26, 2003
 febrúar 02, 2003
 febrúar 09, 2003
 febrúar 16, 2003
 febrúar 23, 2003
 mars 02, 2003
 mars 09, 2003
 mars 16, 2003
 mars 23, 2003
 mars 30, 2003
 apríl 06, 2003
 apríl 13, 2003
 apríl 20, 2003
 apríl 27, 2003
 maí 04, 2003
 maí 11, 2003
 maí 18, 2003
 maí 25, 2003
 júní 01, 2003
 júní 08, 2003
 júní 15, 2003
 júní 22, 2003
 júní 29, 2003
 júlí 06, 2003
 júlí 13, 2003
 júlí 20, 2003
 júlí 27, 2003
 ágúst 03, 2003
 ágúst 10, 2003
 ágúst 17, 2003
 ágúst 24, 2003
 ágúst 31, 2003
 september 07, 2003
 september 14, 2003
 september 21, 2003
 september 28, 2003
 október 05, 2003
 október 12, 2003
 október 19, 2003
 október 26, 2003
 nóvember 02, 2003
 nóvember 09, 2003
 nóvember 16, 2003
 nóvember 23, 2003
 nóvember 30, 2003
 desember 07, 2003
 desember 14, 2003
 desember 21, 2003
 desember 28, 2003
 janúar 04, 2004
 janúar 11, 2004
 janúar 18, 2004
 janúar 25, 2004
 febrúar 01, 2004
 febrúar 08, 2004
 febrúar 15, 2004
 febrúar 22, 2004
 febrúar 29, 2004
 mars 07, 2004
 mars 21, 2004
 mars 28, 2004
 apríl 04, 2004
 apríl 11, 2004
 apríl 18, 2004
 apríl 25, 2004
 maí 02, 2004
 maí 09, 2004
 maí 16, 2004
 maí 30, 2004
 júní 06, 2004
 júní 13, 2004
 júní 20, 2004
 júní 27, 2004
 júlí 04, 2004
 júlí 11, 2004
 júlí 18, 2004
 ágúst 15, 2004
 ágúst 22, 2004
 ágúst 29, 2004
 september 05, 2004
 september 12, 2004
 september 19, 2004
 september 26, 2004
 október 03, 2004
 október 10, 2004
 október 17, 2004
 október 24, 2004
 október 31, 2004
 nóvember 07, 2004
 nóvember 14, 2004
 nóvember 21, 2004
 nóvember 28, 2004
 desember 05, 2004
 desember 12, 2004
 desember 26, 2004
 janúar 09, 2005
 janúar 16, 2005
 janúar 23, 2005
 janúar 30, 2005
 febrúar 06, 2005
 febrúar 13, 2005
 febrúar 20, 2005
 febrúar 27, 2005
 mars 06, 2005
 mars 13, 2005
 mars 20, 2005
 mars 27, 2005
 apríl 03, 2005
 apríl 10, 2005
 apríl 17, 2005
 apríl 24, 2005
 maí 01, 2005
 maí 08, 2005
 maí 15, 2005
 maí 22, 2005
 maí 29, 2005
 júní 05, 2005
 júní 12, 2005
 júní 19, 2005
 júní 26, 2005
 júlí 03, 2005
 júlí 10, 2005
 júlí 17, 2005
 júlí 24, 2005
 júlí 31, 2005
 ágúst 07, 2005
 ágúst 14, 2005
 ágúst 21, 2005
 ágúst 28, 2005
 september 04, 2005
 september 11, 2005
 september 18, 2005
 september 25, 2005
 október 02, 2005
 október 09, 2005
 október 16, 2005
 október 23, 2005
 október 30, 2005
 nóvember 06, 2005
 nóvember 13, 2005
 nóvember 20, 2005
 nóvember 27, 2005
 desember 04, 2005
 desember 11, 2005
 desember 18, 2005
 janúar 15, 2006
 janúar 22, 2006
 janúar 29, 2006
 febrúar 05, 2006
 febrúar 12, 2006
 febrúar 19, 2006
 febrúar 26, 2006
 mars 05, 2006
 mars 12, 2006
 mars 26, 2006
 apríl 02, 2006
 apríl 09, 2006
 apríl 16, 2006
 apríl 23, 2006
 maí 07, 2006
 maí 14, 2006
 maí 28, 2006
 júní 04, 2006
 júní 11, 2006
 júní 18, 2006
 júní 25, 2006
 júlí 02, 2006
 júlí 09, 2006
 júlí 16, 2006
 júlí 23, 2006
 júlí 30, 2006
 ágúst 06, 2006
 ágúst 13, 2006
 ágúst 20, 2006
 ágúst 27, 2006
 september 03, 2006
 september 10, 2006
 september 17, 2006
 október 01, 2006
 október 08, 2006
 október 15, 2006
 október 22, 2006
 nóvember 05, 2006
 nóvember 12, 2006
 nóvember 26, 2006
 desember 03, 2006
 desember 10, 2006
 desember 17, 2006
 desember 24, 2006
 janúar 07, 2007
 janúar 14, 2007
 janúar 21, 2007
 febrúar 04, 2007
 febrúar 11, 2007
 febrúar 18, 2007
 mars 04, 2007
 mars 11, 2007
 mars 25, 2007
 apríl 29, 2007
 maí 06, 2007
 maí 13, 2007
 maí 27, 2007
 júní 03, 2007
 júní 10, 2007
 júní 17, 2007
 júlí 22, 2007
 júlí 29, 2007
 ágúst 19, 2007
 september 02, 2007
 september 09, 2007
 september 23, 2007
 september 30, 2007
 október 07, 2007
 október 28, 2007
 nóvember 04, 2007
 nóvember 11, 2007
 nóvember 25, 2007
 desember 02, 2007
 desember 16, 2007
 janúar 27, 2008
 febrúar 03, 2008
 febrúar 10, 2008
 febrúar 24, 2008
 mars 09, 2008
 mars 16, 2008
 mars 23, 2008
 mars 30, 2008
 apríl 06, 2008
 maí 04, 2008
 maí 11, 2008
 maí 18, 2008
 maí 25, 2008
 júní 01, 2008
 júní 15, 2008
 júní 22, 2008
 ágúst 03, 2008
 ágúst 17, 2008
 
 | fimmtudagur, ágúst 21
          
           
 Já maður! Sææææll! Hversu svalt er að fá hnefaknús frá forsetanum sjálfum! ;) 
 StelpaLitla// Ýrr @ 00:18 miðvikudagur, ágúst 20
          
           Látið mig í friði! Nei, ég ætla ekki að hlaupa á laugardag. Nei, ég ætla ekki að ganga á laugardag. Nei, ekki 10km og ekki heldur 3km. 
 50 tölvupóstar á dag um þetta bjálfans maraþon, og áreiti með lúðralátum í vinnunni í dag.... ÉG ÆTLA EKKI AÐ HLAUPA!!!! Hins vegar er ég búin að heita þúsund kalli á eina sem er miklu duglegri en ég (líka ólétt) og ætlar að ganga 10km! Go Hildur! Verðugt málefni (Barnaspítali Hringsins), og samviskan friðuð ;)
 Ég hvet alla til að heita nokkrum krónum á einhvern hlaupara á laugardag, líka fýlupoka eins og mig sem hvorki vilja hlaupa né ganga...
 StelpaLitla// Ýrr @ 12:50 þriðjudagur, ágúst 19
          
          Já það er að ýmsu að huga þegar brúðkaup nálgast! Ég hef nú seint talist vera skipulögð í svona málum en viti menn...þetta er að smella saman. Verið að sauma kjólinn, matur í ofurframleiðslu Flóvenz fjölskyldunnar, salurinn mældur fyrir borðum og dúkum, förðun og klipping pöntuð og ég veit ekki hvað og hvað. Eigum reyndar eftir að finna hringa...væri það nú ekki týpískt að það þurfi 5 vikna bið eða álíka til að fá síkt afhent! Pleh. Við vonum bara það besta. Farið verður í hringadróttinsferð þegar Biggi stígur upp úr veikindum.
 Ég fattaði semsagt síðasta fimmtudag að það voru TVÆR vikur í brúðkaupið, ekki þrjár eins og ég var búin að ákveða... :-P
 
 Svo var það gæsunin á laugardag - ég skemmti mér konunglega!! Þetta var alveg frábær dagur - takk æðislega fyrir mig stelpur (og strákar)!!! Þið eruð yndi!
 StelpaLitla// Ýrr @ 14:25 fimmtudagur, ágúst 7
          
          Jæja, sumarfríið er búið!Er búin að lifa í eigin heimi í sumarfríinu, var á vergangi vegna flísalagningarvinnu Bigga heima hjá okkur. Fyrst vorum við hjá tengdó í einhverja daga, síðan fluttum við í bílskúrinn til mömmu og pabba. Egill virtist ekki kippa sér mikið upp við þessa flutninga, eða við að búa í töskum og pokum. Kannski af því að hann fékk að leika sér svo mikið úti í garði, sem er það skemmtilegasta í heimi.
 En nú er flísalagningin tilbúin, við erum næstumþví búin að þrífa allt iðnaðarrykið af heimilinu og flutt aftur heim! Jeij!
 
 Ég lifði í einhverji sólar-sumar-bólu í þessu fríi, horfði ekkert á sjónvarpið, sá ekkert Kastljós eða var með í umræðunni um neitt í gangi í borgarpólitíkinni. Er fyrst núna að horfa á hið "fræga" viðtal Helga Seljan við Ólaf F! Dúdda mía. Þetta eru tveir menn sem ég hef engar sérstakar mætur á. Helgi fer óskaplega í mig sem fréttamaður, fæ eiginlega alltaf kjánahroll þegar hann er að reyna að vera alvarlegur og spyrja erfiðra spurninga. Kemur bara alltaf uppáþrengjandi og kjánalega út hjá honum að mínu mati. Og Ólafur F. getur engan vegið svarað á sannfærandi hátt og því er þetta viðtal bara einn stór kjánahrollur fyrir mér! Úff púff. Asnalegar spurningar og asnaleg svör. Og venjulegar spurningar sem eru svarað asnalega. Og eðlileg svör sem kalla á asnalegar spurningar!
 
 Jæja, best að fara að vinna.
 StelpaLitla// Ýrr @ 11:13 miðvikudagur, júní 25
          
           Loksins einhver almennilegur glaðningur á 'Núinu'! Hef alltaf fengið afslætti af naglasnyrtingum og andlitsböðum og eihverju álíka.
 "Ef keypt er ásetning gelnagla fylgir brúnkumeðferð FRÍTT með"
 "25% afsláttur af U.C.W. leirvafningum"
 Að ógleymdu: "2 vikur frítt í Jiu Jitsu".
 Hvað er málið??
 
 En loksins kom:
 "2 fyrir 1 í hádeginu á Carpe Diem" og
 "25% afsláttur hjá Vín og skel".
 
 Það er þó allavega skref í rétta átt!! Því ekki fæ ég mér gelneglur eða fer í leirvafning! ...þó mér veitti nú reyndar ekki af brúnkumeðferðinni... Það er kúl að vera hvítur!
 Efnisorð: núið StelpaLitla// Ýrr @ 13:12 fimmtudagur, júní 19
          
          Sjíss, Þegar maður er orðinn svo heiladauður að horfa á Law & order, Criminal Intent og EM-samantekt dagsins með "áhuga" er kominn tími til að fara í rúmið!
 
 
  Var aðeins of lengi vakandi í gærkvöldi...við Biggi fengum pössun og skelltum okkur í bíó á Indiana Jones IV. Ford er nottla mega töffari, 65 ára í stuði. Ég fílaði allavega myndina mjög vel. Fannst hún mjög í anda gömlu myndanna...semsagt hin fínasta afþreying. Næst er það Narnía :) Já já, ég er öll í ævintýrunum. 
  Talandi um ævintýri, ég fór nú ekki of seint að sofa í gær út af bíóinu, heldur hélt ég áfram að lesa Harry Potter og Fönixeglan (nr.5) þegar ég kom heim úr bíó. Er á síðustu metrunum...ja allavega miðað við þykkt bókarinnar, og orðin heldur spennt. Það var ekki fyrr en hálf 2 sem Biggi skipaði mér að fara að sofa! Geispi geispi. Svo nú ætla ég í rúmið og lesa smá meir áður en ég sofna...
 
 Ætla bara að horfa á Sex and the City trailerinn fyrst. Andvarp. Hlakka til að sjá hana aftur. Svona er maður lasinn í höfðinu.
 Efnisorð: bíó, Harry Potter, Indiana Jones StelpaLitla// Ýrr @ 22:46 fimmtudagur, júní 5
          
          úbbs, ætlaði nú ekki að rasa svona mikið út hér að neðan, heheh.
 Hér er annars snilldar tónlistarsíða!
 Efnisorð: tónlist StelpaLitla// Ýrr @ 12:30 
          
          Víííi!!!!Búin að kaupa miða á Sex and the City í kvöld!!! vei vei vei!!
 Miklar væntingar? Ó já.
 
 Æsifréttamennska
 Hvað er málið með skyndilega æsifréttamennsku á Íslandi? Ekki að ég vilji gera lítið úr jarðskjálftanum eða blessuðum ísbirninum, en finnst mér nú einum og mikið af hinu góða!
 
 Það voru margir sem misstu mikið í skjálftanum, en hversu margir dóu í Kína? Allur dagurinn sem jarðskjálftinn var fór í stanslausar ekki-fréttir og það var eins og ekkert annað væri að gerast í heiminum þann daginn. Enginn slasaðist alvarlega - en það var einn tábrotnaði í fátinu!!!!
 
 Allir í fréttamenn voru mjög alvarlegir:
 - Hafa borist einhverjar fréttir af slösuðu fólki?
 - Nei, enn hafa ekki borist fréttir af slíku, en ég er hér staddur á heimili hjá konu sem er í miklu sjokki og það brotnaði hjá henni vasi. Hún og hennar fjölskylda gistir í tjaldi í nótt.
 - En hafa borist fréttir af slösuðum??
 - Nei enn hafa engar slíkar fréttir borist, en skjálftinn var samkvæmt nýjustu útreikningum X,X á richter og ég er hér staddur við Ingólfsfjall þar sem er reykur í fjallinu.
 (endurtaka þetta í 10 klukkutíma)
 
 Það er ekki endilega málið að ekki mátti segja frá jarðskjálftanum á alvarlegum nótum. Mér fannst bara umgjörðin utan um fréttirnar vera orðin eitthvað svo....bandarísk. Og það fer í mig.
 
 Sama með þennan blessaða ísbjörn. Nú kveikir maður ekki á útvarpi öðruvísi en að "fólkið á götunni" er að segja frá sinni skoðun á málinu. Hvað vitum við??? Ég hef ekkert vit á ísbjörnum eða hvernig eigi að meðhöndla þá og maður veit því lítið um það hvort þetta hafi verið rétt ákvörðun eða ekki.
 Ef honum hefði verið sleppt upp á hálendi í þokunni, þá hefði geta orðið mjög erfitt að finna hann aftur! Það gæti hljómað sem auðveldur hlutur að spotta eitt stykki ísbjörn uppi á hálendi. En ég spyr, hversu margir ferðamenn hafa ekki týnst á hálendinu og aldrei fundist aftur?? Svo einn daginn vappar hann á næsta bæ og brýtur þar allt og bramlar! Þá verður allt brjálað af því að ekki var búið að gera eitthvað í málinu.
 
 Svo eru allir æstir í að deyfa greyið dýrið til að koma því til síns heima.
 Nr.1: Deyfum ísbjörninn.
 ...og hvað svo? Setja hann í gám? Ekki þykja mér það nú "mannúðlegar" aðstæður fyrir hann. En segjum sem svo að það hefði verið vænlegur kostur að deyfa hann (jafnvel aftur og aftur þar til hann kæmist á góðan geymslustað) Hljómar vel?
 Nr. 2: Flytjum hann til síns heima
 Ef hægt hefði verið að koma birni litla í gott geymsluumhverfi, hefði kannski verið hægt að flytja hann heim - ef Danir hefðu tekið á móti honum það er að segja. Umræðan um að flytja björninn heim hefur annars einkennst af að vilja flytja hann til síns heima - ekki til að vera góð við ísbjörninn - heldur til að sýna heiminum hvað við séum nú góð við dýr, þó að við drepum hvali!
 
 Don´t even get me started á hvalveiðunum. Er frekar hlynnt hvalveiðum en hitt, en væri alveg hægt að fá mig til að skipta um skoðun með góðum rökum. Hins vegar eru EKKI rök að veiða ekki hvali af því að þá verða einhverjir úti í heimi fúlir út í okkur og greenpeace skipið kemur hingað og gerir allt brjál.
 
 Og ekki misskilja - hræðilegt fyrir fólkið sem missti mikið í jarðskjálftanum og mér fannst þetta mjög merkilegur jarðskjálfti.
 Og ég er ekkert endilega fylgjandi því eða á móti því að skjóta ísbjörninn. En ég reyni líka að mynda mér ekki of miklar skoðanir (oft hægar sagt en gert) á hvað sé rétt og rangt í svona tilfellum, því ég þekki bara ekki til aðstæðna!
 
 That said, þá á maður auðvitað að mynda sér skoðun og fylgjast með því sem er að gerast og líka láta í sér heyra ef manni ofbýður. En vera þá tilbúin að hlusta á önnur rök líka, en manns eigins. Jæja, komið gott af tuði.
 
 Aftur í gleðina - SATC í kvöld!! Jibbí jei!!!
 StelpaLitla// Ýrr @ 11:13  
           | 
 Vondulagakeppnin
1. Basshunter: Boten Anna
2.David Hasselhoff: Jump In My Car3.Mervi Vesala: I wanna love you tender
4.Rick Dees: Disco Duck
5.NKOTB: Step by step
6.Tommy Seebach band: Apache 
7.Framsóknarsamba
8.Dennis Madalone: America We Stand As One
9.Daler Mehndi: Tunak Tunak Tun
 10. PWC og KPMG
 
 helstu einkenni tvíbura:
 
Léttleiki, heiðríkja og bjartsýni.Hressir, vingjarnlegir, málgefnir, forvitnir,
vakandi, gott minni
 koma oft vel fyrir sig orði,
 eirðarlausir, félagslyndir, fjölhæfir.
 Hafa þörf fyrir fjölbreytni,
 tvískiptir, óstundvísir, glaðlyndir, raunsæir,
stríðnir, fróðleiksfúsir, jákvæðir, gamansamir,
 eiga til að lofa upp í ermina á sér,
 hæfileiki til að gera margt á sama tíma.
 
 
    Sneddí linkarSellan.is
 Baggalutur.is
 Weebl and Bob
 Háskólakór
 Friendster.com
 
    
    Leikirdvergakast
 gull
              leikur
 bubbli
              leikur
 peningaleikur
 örkin
              hans nóa
 
 
     
  |